Líf og fjör við strandhreinsun

Síðastliðna helgi, dagana 12.-14. ágúst, vann hópur sjálfboðaliða að strandhreinsun á Langanesi.

Líf og fjör við strandhreinsun
Almennt - - Lestrar 387

Unnið að strandhreinsun á Langanesi.
Unnið að strandhreinsun á Langanesi.

Síðastliðna helgi, dagana 12.-14. ágúst, vann hópur sjálfboðaliða að strand-hreinsun á Langanesi.

Frá þessu segir á heimasíðu Langanesbyggðar en að þessu sinni voru hreinsaðir um 2 kílómetrar, að mestu leiti fyrir landi Ytra-Lóns en einnig lítil spilda í landi Heiðarhafnar.

Það sem safnaðist var af ýmsum toga, allskonar ónýt veiðarfæri auk plastumbúða. Verkefnið í ár var framhald af samstarfi Langanesbyggðar og umhverfissamtakanna Ocean Missions frá því í fyrra en þá söfnuðust um fjögur tonn af rusli á álíka löngum kafla.

Umhverfissamtökin Ocean Missions gera út frá Húsavík en kjarna samtakanna mynda fræðimenn á ýmsum sviðum sjávarlíffræði auk áhugafólks um lífríki sjávar. Í janúar á þessu ári voru samtökin ein fjögurra til að hljóta styrk frá Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu á grundvelli aðgerðar 17 í aðgerðaráætlun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins í plastmálefnum sem nefnist „Úr viðjum plastsins“.

Ásamt Langanesbyggð og Ocean Missions voru bakhjarlar strandhreinsunarinnar Ísfélag Vestmannaeyja og Íslenska Gámafélagið. Bæði fyrirtækin eru með myndarlega starfsemi í Langanesbyggð og veittu mikilvægan stuðning til verkefnisins.

"Loks bera að þakka íbúum að Ytra-Lóni, Heiðarhöfn og Hlíð fyrir gott samstarf og síðast en ekki síst öllum sjálfboðaliðum fyrir þeirra framlag". Segir á heimasíðu Langanesbyggðar.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744