Líf og fjör á Curiomótinu í knattspyrnu - MyndasyrpaÍþróttir - - Lestrar 1130
Það var líf og fjör á knattspyrnuvöllunum á Húsavík í gær þegar Curiomótið í knattspyrnu fór fram í blíðskaparveðri.
Þar voru knattspyrnumenn framtíðarinnar mættir til leiks en tæplega sjö hundruð iðkendur úr 118 liðum frá ellefu félögum frá Fjarðarbyggð í austri til Fjallabyggðar í vestri tóku þátt.
Að sögn Guðmundar Friðbjörnssonar framkvæmdarstjóra Völsungs tókst mótið afskaplega vel.
“Þetta gekk allt vel, foreldrarnir sem komu að mótinu stóðu sig eins og hetjur og mótsnefndin vel skipulögð. Vinnan sem er unnin í kringum mótið miðar alltaf að því að gera næst mót betra. Þ.e. taka litlu, og stóru hlutina þegar þeir eru til staðar, og bæta þá og það gekk eftir í ár.
“Við villjum þakka aðalstyrktaraðila mótsins, Curio ehf, fyrir að styrkja mótið og taka það að sé næstu árin. Við viljum einnig þakka Goða og Trésmiðjunni Rein fyrir sína aðkomu að mótinu og að lokum vill félagið koma fram þökkum til allra sjálfboðaliðanna sem lögðu vinnu í mótið, án þeirra væri viðburðir af þessum toga óframkvæmanlegir”.
Sagði Guðmundur í stuttu spjalli við 640.is en hér að neðan eru myndir sem ljósmyndari 640.is tók á mótinu og með því að smella á þær er hægt að fletta þeim og skoða í stærri upplausn.









































































































640.is á Facebook