Langtímasamband Húsavíkurstofu og Norðurþings í höfnAlmennt - - Lestrar 157
Síðastliðin tvö og hálft ár hefur Húsavíkurstofa verið með starfandi forstöðumann.
Í þann tíma hefur stofan fengið styrki frá Norðurþingi, en alltaf eitt ár í senn.
Í sumar náðist sá ánægjulegi árangur að Norðurþing og Húsavíkurstofa gerðu með sér samning til þriggja ára. Það gefur Húsavíkurstofu tækifæri á því að setja starfið í betri farveg ásamt því að gera langtímaáætlanir og setja á koppinn verkefni til lengri tíma.
Ný stjórn Húsavíkurstofu frá því í vor hefur verið að undirbúa og marka framhald stofunnar til lengri tíma, mörg verkefni hafa verið í umræðunni, meðal annars; markaðsetning Húsavíkur utan háannatíma, eftirfylgni verkefna tengdum Eurovision kvikmyndinni, hvernig nýta á betur göngu- og hjólastíga bæjarins, ásamt fleirum.
Á myndinni má sjá Kristján Þór, sveitarstjóra Norðurþings og Evu Björk Káradóttur, formann stjórnar Húsavíkurstofu með undirritaðan samning í höndunum.