Kveður eftir rúmlega 20 ára stjórnarformennskuAlmennt - - Lestrar 778
Á framhaldsaðalfundi Þekkingarnets Þingeyinga í morgun gaf Aðalsteinn Árni Baldursson formaður Framsýnar ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnunarstarfa fyrir Þekkingarnetið.
Aðalsteinn Árni hefur setið lengi í stjórn setursins fyrir stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum og verið formaður stjórnar ÞÞ frá stofnun þess árið 2003.
Áður var hann í stjórn Fræðslumiðstöðvar Þingeyinga.
Frá þessu segir á heimasíðu stéttarfélaganna en Aðalsteinn Árni var leystur út með gjöfum um leið og honum voru þökkuð vel unninn störf í þágu Þekkingarnets Þingeyinga af stjórnarmönnum og forstöðumanni Óla Halldórssyni.
Aðalsteinn þakkaði fyrir sig og óskaði ÞÞ velfarnaðar í störfum sínum í þágu samfélagsins.





























































640.is á Facebook