19. feb
Ívar Arnbro kominn í Völsung á láni frá KAÍþróttir - - Lestrar 436
Markmaðurinn Ívar Arnbro Þórhallsson er genginn til liðs við Völsung á láni frá KA.
Frá þessu segir á Fésbókarsíðu Græna hersins en Ívar, sem er 19 ára, hefur þegar spilað tvo leiki í Lengjubikarnum með grænum og staðið sig með prýði.
Ívar spilaði 21 leik með Hetti/Huginn í 2.deild karla síðasta sumar og á að baki fimmtán unglingalandsliðsleiki, þar af nú síðast fjóra með U-19.





























































640.is á Facebook