Íbúafundur í Öxarfjarðarhéraði

Þann 29. janúar s. l. var haldinn íbúafundur í Lundi, Öxarfirði en þar mættu alls tæplega 50 manns og tóku þátt í þeirri vinnu sem þar fór fram.

Íbúafundur í Öxarfjarðarhéraði
Almennt - - Lestrar 533

Þann 29. janúar s. l. var haldinn íbúafundur í Lundi, Öxarfirði en þar mættu alls tæplega 50 manns og tóku þátt í þeirri vinnu sem þar fór fram. 

Ánægjulegt var að sjá að þarna komu íbúar af svæðinu öllu.

Á dagskrá voru tvær kynningar, annars vegar frá Framfarafélag Öxarfjarðar og hins vegar frá Brynjari Þór og Guðrúnu Lilju sem eru að vinna að því að koma á fót ullarvinnslu í Gilhaga. Verkefnisstjóri ÖÍS fór með stutta samantekt af árinu 2018 ásamt yfirferð á stöðu starfsmarkmiða. Kvenfélag Öxfirðinga sá til þess að fundarfólk færi hresst og endurnært inn í seinni hluta fundarins með dásemdar súpu og brauði.

Eftir kvöldmat hófst hópavinna sem gekk út á endurskoðun og uppfærslu starfsmarkmiða ÖÍS. Alls voru fjórir vinnuhópar (byggt á megin markmiðum verkefnisins):

Framandi áfangastaður

Framsækni í matvælaframleiðslu

Uppbyggilegt samfélag

Öflugir innviðir.

Miklar og góðar umræður áttu sér stað, einnig fjölgaði starfsmarkmiðum töluvert- nú eru spennandi tímar fram undan hjá verkefnisstjóra. Á næstu dögum verður uppfærð stefnuskrá(framtíðarsýn og markmið) birt til kynningar.

Atthing.is/Charlotta Englund


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744