Hyggjast reisa 200 herbergja glæsihótel á Húsavíkurhöfða

Það var vel mætt í gær á kynningarfund um hóteluppbyggingu norska fyritækisins Fakta Bygg á Húsavíkurhöfða.

Kristján Eymundsson framkvæmdastjóri Fakta Bygg..
Kristján Eymundsson framkvæmdastjóri Fakta Bygg..

Það var vel mætt í gær á kynningarfund um hóteluppbyggingu norska fyritækisins Fakta Bygg á Húsavíkurhöfða.

Fundurinn var haldinn á Fosshótel Húsavík í samstarfi við Norðurþing.

Húsvíkingurinn, Kristján Eymundsson framkvæmdastjóri Fakta Bygge kynnti hugmyndina en hann hefur ásamt hönnuðum og fleirum unnið að þessu verkefni frá því í desember í fyrra þegar fyrirtækið fékk lóð frátekna undir hótelið á Húsavíkurhöfða.

Hótelið sem um ræðir gæti orðið allt að 200 herbergja og stefnt er að opnun þess á vormánuðum 2021.

Hér má lesa frétt RÚV um málið.

Kristján Eymundsson

Kristján Eymundsson kynnti verkefnið og fór yfir stöðu þess.

Åse Øydegard

Åse Øydegard arkitekt hjá Magu Design og einn af hönnuðum hótelsins kynnti hönnunarvinnuna fyrir fundargestum og sýndi teikningar af hótelinu. 

Fundur Fakta Bygg

Fundurinn var vel sóttur af heimamönnum.

Fundur Fakta Bygg

Kristján Eymundsson

Kristján á skrafi við fundargesti.

Ljósmynd Gaukur Hjartarson

Ljósmynd Gaukur Hjartarson.

Fundur Fakta Bygg

Kynningarmynd frá Fakta Bygg/Magu Design.



  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744