Húsvísk heimildarmynd frumsýnd á laugardag

Kvikmyndin Af jörðu ertu kominn verður frumsýnd laugardaginn 20. júlí kl. 19.45.

Húsvísk heimildarmynd frumsýnd á laugardag
Fréttatilkynning - - Lestrar 434

Örlygur Hnefill Örlygsson handritahöfundur.
Örlygur Hnefill Örlygsson handritahöfundur.

Kvikmyndin Af jörðu ertu kominn verður frumsýnd laugardaginn 20. júlí kl. 19.45. 

Frumsýningin fer fram samtímis á RÚV og í Bíó Paradís í Reykjavík, en myndin fer síðan til sýninga og á kvikmyndahátíðir erlendis út árið 2019.  

Myndin heitir á ensku Cosmic Birth og segir frá hinni mannlegu hlið ferðanna til tunglsins, en alls gengu 12 menn á tunglinu frá 1969 til 1972. Myndir tunglfaranna af jörðinni höfðu djúpstæð áhrif á skynjun mannkyns á heimili sínu í geimnum og stuðluðu að mikilli umhverfisvakningu um allan heim næstu áratugi. Í myndinni er m.a. rætt við fimm af Apollo geimfara, auk sonar Neil Armstrong sem fyrstur steig fæti á tunglið. Þar segja geimfararnir frá upplifun sinni. 

Leikstjóri myndarinnar er Rafnar Orri Gunnarsson, handritshöfundur er Örlygur Hnefill Örlygsson og tónlist er eftir Framfara og Ósa á Borg. Myndin er framleidd af Colorwaves fyrir Könnunarsafnið á Húsavík. 

Í myndinni er einnig rætt við Vilborgu Dagbjartsdóttur ljóðskáld og barnabókahöfund sem skrifaði m.a. bókina Alli Nalli og Tunglið. „Það er eitthvað svo fallegt við jafnvægið á milli jarðarinnar og tunglsins og greinilegt að Vilborg hefur mikið hugsað um það á sinni lífsleið,“ segir Rafnar Orri Gunnarsson leikstjóri myndarinnar. Hann segir hafa verið skemmtilegt að sjá að það sem situr eftir hjá tunglförunum eftir þessar ferðir er upplifunin af jörðinni í fjarska.

Könnunarsafnið og Sendiráð Bandaríkjanna á Íslandi standa saman að dagskrá fyrir frumsýninguna í Bíó Paradís sem hefst kl.19.00 og verður m.a. hluti safnsins til sýnis í anddyri kvikmyndahússins. Tónlistarmennirnir Framfari og Ósi á Borg leika nokkur lög og boðið verður upp á rauðvín frá síðasta manninum sem steig niður á tunglið og tunglgraut Alla Nalla. Aðgangur er ókeypis í Bíó Paradís, en miðahafar ganga fyrir inn í sal. Hægt er að panta miða með því að senda póst áinfo@explorationmuseum.com


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744