Hopp á Húsavík

Í morgun undirritaði Norðurþing þriggja ára samning við Hopp ehf. um rafskútuleigu á Húsavík.

Hopp á Húsavík
Almennt - - Lestrar 519

Hopp á Húsavík.
Hopp á Húsavík.

Í morgun undirritaði Norðurþing þriggja ára samning við Hopp ehf. um rafskútuleigu á Húsavík.

"Við hjá Norðurþingi erum afar ánægð með að Hopp hafi ákveðið að bjóða upp á sína þjónustu á Húsavík og þar með boðið okkar fólki uppá grænan samgöngukost.

Rafskútur eru þægilegur, nútímalegur og umhverfisvænn samgöngukostur sem heimamenn og okkar fjölmörgu gestir geta nú nýtt sér til að komast á milli staða". Sagði Bergþór Bjarnason, starfandi sveitarstjóri Norðurþings eftir undirritunina.

Hér má lesa samstarfsyfirlýsingu Norðurþings og Hopp en 24 rafskútur eru í boði.

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Michael Given frá Hopp, Hafrún Olgeirsdóttir formaður byggðarráðs, Bergþór Bjarnason starfandi sveitarstjóri og Birna Íris Barkardóttir tengiliður Hopp Húsavík.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744