Halldór Jón Gíslason skipaður skólameistari Framhaldsskólans á Húsavík

Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Halldór Jón Gíslason í embætti skólameistara Framhaldsskólans á Húsavík til fimm

Halldór Jón Gíslason.
Halldór Jón Gíslason.

Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Halldór Jón Gíslason í embætti skólameistara Framhaldsskólans á Húsavík til fimm ára frá 1. ágúst næstkomandi.

Halldór hefur starfað við skólann frá árinu 2017 sem aðstoðarskólameistari og áfangastjóri. Hann hefur einnig starfað við verkefnastjórn á Hvalasafninu á Húsavík og við kennslu í Framhaldsskólanum auk annarra starfa.

Halldór er með meistaragráðu frá Háskóla Íslands í mannauðsstjórnun auk kennsluréttinda í framhaldsskóla frá sama skóla. Hann hefur lokið grunnnámi í sagnfræði við Háskóla Íslands.

Alls sóttu tveir um embættið. 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744