Hættustig enn í gildi í Útkinn

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra funduðu í morgun með Veðurstofu Íslands vegna mikillar úrkomu og

Hættustig enn í gildi í Útkinn
Almennt - - Lestrar 210

Á vettvangi í nótt. Lj. Bjsv. Garðar.
Á vettvangi í nótt. Lj. Bjsv. Garðar.

Almannavarnadeild ríkislögreglu-stjóra og Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra funduðu í morgun með Veðurstofu Íslands vegna mikillar úrkomu og skriðuhættu í Útkinn.

Í tilkynningu segir að hættustig sé í gildi á svæðinu og er talið ótímabært að aflétta rýmingu á fimm bæjum sem voru rýmdir í nótt.

Lélegt skyggni er á svæðinu en þyrla Landhelgisgæslunnar mun fljúga yfir svæðið um hádegið auk þess sem sérsveitarmenn ríkislögreglustjóra munu mynda svæðið með flygildi. Staðan verður endurmetin síðdegis þegar búið er að afla frekari upplýsinga.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744