08. okt
Hættustig á Norðurlandi eystra og AusturlandiAlmennt - - Lestrar 287
Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjóra um landið lýst yfir hættustigi almannavarna á Norðurlandi eystra og Austurlandi og óvissustigi á Vestfjörðum, Norðurlandi vestra og Suðurlandi.
Þetta er gert vegna veðurspár fyrir morgundaginn, þar sem varað er við stormi eða norðan hvassviðri um allt land með rauðum veðurviðvörunum á Norðurlandi eystra og Austurlandi að Glettingi en gulum og appelsínugulum viðvörunum annars staðar á landinu.
Almannavarnir hvetja fólk til að fylgjast vel með veðurspám og upplýsingum um ástand vega. Þar sem spár Veðurstofu geri ráð fyrir mikilli úrkomu er fólk sérstaklega hvatt til að huga að ræsum og niðurföllum til að forðast vatnstjón.





























































640.is á Facebook