30. nóv
Gústaf nýr markaðs- og sölustjóri hjá Fjallasýn Rúnars Óskarssonar ehf.Fréttatilkynning - - Lestrar 837
Gústaf Gústafsson hefur hefur verið ráðinn markaðs- og sölustjóri hjá Fjallasýn Rúnars Óskarssonar ehf. í sveitarfélaginu Norðurþingi.
Gústaf starfaði áður m.a. sem markaðs-, sölu- og vöruþróunarstjóri hjá Norðursiglingu á Húsavík, forstöðumaður Markaðsstofu Vestfjarða og markaðs- og fjáröflunarstjóri hjá Krabbameinsfélagi Íslands.
Gústaf leggur stund á Masters nám í Sustainable Tourism Management hjá Leeds Beckett University, útskrifaðist með BA gráðu í heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði frá Háskólanum á Bifröst og Diploma í samhæfðum markaðssamskiptum frá Háskólanum í Reykjavík.
Gústaf hefur þegar hafið störf hjá félaginu.





























































640.is á Facebook