30. sep
Green Fuel óskar eftir formlegu samstarfi við NorðurþingAlmennt - - Lestrar 285
Fyrirtækið Green Fuel ehf. hefur óskað formlega eftir samstarfi við Norðurþing varðandi uppbyggingu á starfsemi fyrirtækisins innan fyrirhugaðs græns iðngarðs á Bakka.
Erindi þess efnis lá fyrir fundi Byggðaráðs Norðurþings í dag en Green Fuel stefnir á að vera leiðandi í orkuskiptum sem senn fara í hönd með því að reisa vetnis- og ammóníaksframleiðsluver á Bakka.
Í erindinu er þess farið á leit að undirrituð verði viljayfirlýsing sem sýni áhuga beggja aðila, þ.e. Norðurþings og Green Fuel ehf. til að vinna verkefnið áfram.
Byggðarráð fól sveitarstjóra að vinna málið áfram og leggja fyrir ráðið að nýju.





























































640.is á Facebook