Glæsilegur árangur í blakinuÍþróttir - - Lestrar 116
Nú er nýloknu keppnistímabilinu í blaki þennan veturinn og það má með sanni segja að blakstrákarnir í hinu sameiginlega liði Völsungur/Efling hafi haft í nægu að snúast á þessu tímabili.
Ungt lið félagsins tók þátt í Íslandsmótinu í U20 aldursflokknum, í 2. deild (næst efstu) Íslandsmóts karla, bikarmóti í U20 og Kjörísbikarkeppni karla. Heilt yfir spilaði liðið alls 35 leiki í vetur, þar af 17 í Íslandsmóti U20. Samhliða þessu spiluðu fimm leikmenn liðsins einnig í U16 aldursflokknum í vetur í samstafi við KA og tóku þeir því þátt í um 50 leikjum í vetur.
Skemmst er frá því að segja að árangurinn var með besta móti og bikaraskápurinn í íþróttahöllinni þandist út af verðlaunagripum eftir veturinn. Veislan byrjaði fyrir alvöru á bikarmóti yngri flokka sem haldið var á Akureyri í febrúar. Þar vann U20 liðið alla sýna leiki, þar á meðal lið Vestra í æsispennandi úrslitaleik sem endaði 15 – 13 í oddahrinu. Þá varð U16 lið KA/Völsungs einnig bikarmeistari.
Í lok febrúar spilaði liðið við úrvalsdeildarlið Vestra í 8-liða úrslitum Kjörísbikarsins. Áður hafði liðið slegið út lið Blakfélags Hafnafjarðar í 1. umferð. Leikurinn fór fram í íþróttahöllinni á Húsavík fyrir framan frábæran hóp áhorfenda sem studdu vel við bakið á liðinu í þessum leik eins og öllum hinum heimaleikjum liðsins í vetur. Leikurinn tapaðist en okkar drengir náðu þó að vinna eina hrinu gegn úrvalsdeildarliðinu sem verður að teljast vel að verki staðið.
Næsta verkefni liðsins var í Neskaupstað þar sem úrslitakeppnin í 2. deild karla fór fram seinnipartinn í mars. Enn og aftur börðust okkar drengir eins og ljón og uppskáru efsta sætið og þar með Íslandsmeistaratitilinn í 2. deild. Tveir bikarar mættir til Húsavíkur og enn nóg eftir.
Síðasta rimman var svo úrslitaleikur við HK um Íslandsmeistaratitilinn í U20. Sá leikur var leikinn laugardaginn 14. maí í höllinni á Húsavík. Það var viðeigandi endir á tímabilinu að strákarnir skildu fá tækifæri til að lyfta loks bikar á heimavelli fyrir framan okkar frábæru áhorfendur sem hafa staðið svo vel við bakið á þeim í vetur. Það kom því aldrei neitt annað en sigur til greina í þeim leik enda endaði leikurinn 3 - 0 fyrir okkar drengi og þriðji titillinn tryggður. Helgina eftir fóru síðan fimm af þessum drengjum og náðu í Íslandsmeistaratitilinn í U16 til Ísafjarðar og fullkomnuðu þannig veturinn með öllum titlum sem í boði voru fyrir utan sjálfan Kjörísbikarinn.
Síðan til að toppa allt saman þá hafa fjórir af okkar drengjum – þeir Aron Bjarki Kristjánsson, Hreinn Kári Ólafsson, Hörður Mar Jónsson og Sigurður Helgi Brynjúlfsson verið boðaðir á landsliðsæfingar núna í júní fyrir næsta verkefni liðsins 14. – 18. júní í Edinborg sem er mót smáþjóða á vegum Evrópska blaksambandsins. Hreint út sagt frábær árangur hjá okkar flottu strákum og tímabil sem seint mun gleymast.
Sameiginlegt lið Völsungs og Eflingar ásamt þjálfurum sínum. Andri Hnikarr Jónsson tv. og Tihomir Paunovski.