Gestabókarganga á Geflu

Ferðafélagið Norðurslóð stendur fyrir gestabókargöngu næstkomandi sunnudag, 22. maí.

Gestabókarganga á Geflu
Fréttatilkynning - - Lestrar 526

Ferðafélagið Norðurslóð stendur fyrir gestabókargöngu næstkomandi sunnudag, 22. maí.

Farið verður með gestabókina á fjallið Geflu, sem er hæsta fjall í Leirhafnarfjallgarði, norðan Kópaskers. Þetta er hluti af verkefninu "Fjölskyldan á fjallið".
 
Farinn er veguirinn út á Melrakkasléttu til norðurs frá Kópaskeri um 15 km. Lagt af stað kl. 13:00 frá malarnámu sem er rétt norðan við Leirhafnarvatn.
 
Fjallið er 205 m. hátt og gönguvegalengdin 1,5 km á toppinn. Bókin verður á Geflu í allt sumar og kallar á fólk að koma og skrifa nafið sitt.
 
Ferðafélagið býður alla velkomna í hressandi útivist.

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744