Garðfuglahelgi Fuglaverndar um komandi helgi

Hin árlega garðfuglahelgi Fuglaverndar verður um komandi helgi, dagana 27. - 30. jan.

Garðfuglahelgi Fuglaverndar um komandi helgi
Fréttatilkynning - - Lestrar 703

Silkitoppur og skógarþröstur á grein.
Silkitoppur og skógarþröstur á grein.

Hin árlega garðfuglahelgi Fuglaverndar verður um komandi helgi, dagana 27. - 30. jan.

Athugendur velja hvaða dag þeir fylgjast með garðfuglunum eftir veðri og aðstæðum.

Þátttakendur skrá hjá sér hvaða fuglar koma í garðinn og þá er miðað við mesta fjölda af hverri tegund á meðan athugunin stendur yfir.

Talningin miðar við þá fugla sem eru í garðinum en ekki þá sem fljúga yfir.

„Ef fuglunum er ekki gefið reglulega þá er gott að hefja undirbúning talningar nokkrum dögum áður með því að gefa daglega til að lokka að fugla. Misjafnt er hvaða fóður hentar hverri fuglategund.

Epli eru vinsæl hjá mörgum fuglum og auðvelt að koma þeim fyrir með því að skera þau í tvennt eða stinga kjarnann úr þeim og festa á trjágrein,“ Segir í fréttatilkynningu frá Fuglavernd.

Fuglavernd

Silkitoppur og skógarþröstur á grein. Ljósmyndari: Örn Óskarsson.

Hér er viðburðurinn: Garðfuglahelgin 2017

Hér er viðburðurinn á Facebook: Garðfuglahelgin 2017 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744