Fyrsta málm­in­um tappað af ofn­in­um í gær

Stórum áfanga var náð í gær þegar fyrsta kíslinum var tappað af fyrri ljósbogaofninum í kísilveri PCC BakkaSilicon.

Fyrsta málm­in­um tappað af ofn­in­um í gær
Almennt - - Lestrar 515

Stórum áfanga var náð í gær þegar fyrsta kíslinum var tappað af fyrri ljósbogaofninum í kísilveri PCC BakkaSilicon.

Það ríkir mikil gleði á meðal starfsmanna PCC BakkiSilicon yfir áfanganum en á heimasíðu fyrirtækisins segir að  uppkeyrslan hingað til hafi gengið nokkurn veginn samkvæmt áætlum. Það sem mestu skiptir þó er að hún hefur verið án slysa á fólki og óhappa.

Í gær var unnið að því að fínstilla rekstur reykhreinsivirkisins sem varð til þess að neyðarskorsteinar voru opnaðir í skamma stund og var reykur frá verksmiðjunni sjáanlegur á meðan.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744