07. mar
Fullur stuðningur Framsýnar við kjarabaráttu EflingarFréttatilkynning - - Lestrar 528
Stjórn og trúnaðarráð Framsýnar samþykkti í morgun eftirfarandi ályktun til stuðnings fyrirhuguðum verkfallsaðgerðum Eflingar stéttarfélags:
„Framsýn stéttarfélag lýsir yfir fullum stuðningi við fyrirhugaðar verkfallsaðgerðir Eflingar-stéttarfélags þann 8. mars 2019.
Kjaradeilurnar tengjast kjaradeilu félagsins við SA vegna endurnýjunar kjarasamnings starfsfólks í veitinga- og gistihúsum og hliðstæðri starfsemi, sem rann út 31. desember 2018.
Jafnframt kallar félagið eftir breiðri samstöðu verkafólks um land allt fyrir kröfunni um jöfnuð og mannsæmandi laun.“





























































640.is á Facebook