Fréttaţulur BBC veitir landkönnunarverđlaun á Húsavík

Landkönnunarhátíđ á Húsavík hefur stađiđ síđustu 3 daga og verđur hápunktur hátíđarinnar í dag ţegar Landkönnunarverđlaun Leifs Eiríkssonar, Leif Erikson

Fréttaţulur BBC veitir landkönnunarverđlaun á Húsavík
Fréttatilkynning - - Lestrar 672

Babita Sharma.
Babita Sharma.

Landkönnunarhátíđ á Húsavík hefur stađiđ síđustu 3 daga og verđur hápunktur hátíđarinnar í dag ţegar Landkönnunarverđlaun Leifs Eiríkssonar, Leif Erikson Exploration Awards, verđa veitt í ţriđja sinn. 

Babita Sharma, fréttaţulur BBC World News mun kynna verđlaunin í dag, en síđustu tvö ár hafa tveir forsetar Íslands, Guđni Th. Jóhannesson og Ólafur Ragnar Grímsson, veitt verđlaunin fyrir hönd Könnunarsafnsins sem stendur ađ hátíđinni. 
 
Í tilkynningu segir ađ ţátttakendur í hátíđinni í ár séu međal annara Alex Bellini sem fyrr á ţessu ári fór yfir Vatnajökul og hefur m.a. fariđ einn í 227 daga róđur yfir Atlantshafiđ, og Edurne Pasaban sem er fyrst kvenna til ađ klífa öll 14 fjöll heims yfir 8 ţúsund metrum. 
 
Verđlaunin hafa áđur m.a. veriđ veitt Harrison Schmitt tunglfara, hinum Indversku Malik systrum, siglingakonunni Jessicu Watson sem fór 16 ára umhverfis hnöttin, og áhöfn Haraldar Hárfagra. Hátíđinni lýkur á morgun. 

  • Herna

640.is | Ábyrgđarmađur Hafţór Hreiđarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744