Framtaksemi Birnu til mikillar fyrirmyndar

Góður og reglulegur göngutúr er býsna gott markmið, en það má segja að göngutúr með það að markmiði að tína upp það rusl sem á vegi manns verður sé

Framtaksemi Birnu til mikillar fyrirmyndar
Almennt - - Lestrar 636

Birna Kristín Friðriksdóttir. Lj. framsyn.is
Birna Kristín Friðriksdóttir. Lj. framsyn.is

Góður og reglulegur göngutúr er býsna gott markmið, en það má segja að göngutúr með það að markmiði að tína upp það rusl sem á vegi manns verður sé jafnvel enn betri.

Það er góð leið til að  sameina áhuga á útiveru og umhverfismeðvitund, ánægjan af því að fara út og hreyfa sig verður margfalt meiri með því að gera það með þessum hætti.

Á vef Framsýnar segir frá Birnu Kristínu Friðriksdóttur frá Grenivík sem býr og starfar í Stórtjarnaskóla.

Hún setti sér það markmið fyrr í sumar að ganga í áföngum frá Stórutjarnaskóla til Grenivíkur og tína rusl meðfram þjóðveginum. Birna hefur nú lokið verkinu. Gönguferðirnar í kringum ruslatínsluna urðu 11 talsins og magnið sem hún safnaði af rusli umtalstalsvert.

Það eru 40 km. frá Stórutjarnaskóla til Grenivíkur. Birna segir mesta ruslið hafa verið meðfram þjóðvegi 1 um  Ljósavatnsskarð. Þar hafi hún tínt mikið magn af alls konar dóti í vegköntunum, aðallega þó flöskur og dósir. Hún hafi hins vegar ekki haft mikið upp úr krafsinu eftir að hún beygði inn á veg 835, Fnjóskadalsveg eystri og til Grenivíkur, annað en burtfoknar vegstikur, sem margar hefðu tapað upprunalegu gildi sínu, beyglaðar og brotnar úti í móum eftir sjóþyngsli síðustu vetra. Stikunum safnaði Birna saman og hyggst færa hluteigandi aðila, þ.e.a.s Vegagerðinni á Akureyri.

"Það er full ástæða til þess að hrósa fyrir það sem vel er gert og framtaksemi Birnu er til mikillar fyrirmyndar. Alltof víða safnast upp rusl á víðavangi, það er augljóst lýti á umhverfinu, en það liggur ekki endilega í augum uppi í hvers verkahring það er að fjarlægja það. En víst er að varla er til betri leið til að sameina útiveru og hreyfingu, sem og sýna umhverfinu og samfélaginu kærleik í verki" segir í fréttinni á vef Framsýnar.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744