Framsýn - Samningsumboðið til SGS

Framsýn stéttarfélag hefur samþykkt að Starfsgreinasamband Íslands fari með samningsumboð félagsins í komandi kjaraviðræðum við Samtök atvinnulífsins og

Framsýn - Samningsumboðið til SGS
Almennt - - Lestrar 265

Framsýn stéttarfélag hefur samþykkt að Starfsgreinasamband Íslands fari með samningsumboð félagsins í komandi kjaraviðræðum við Samtök atvinnulífsins og aðra viðsemjendur er tengist þeim kjarasamningum sem félagið á aðild að í gegnum sambandið og renna almennt út 31. janúar 2024. 

Kjarasamningarnir eru:

  • Heildarkjarasamningur SGS og SA
  • Kjarasamningur SGS og SA vegna veitinga-, gisti-, þjónustu-, og greiðasölustaða, afþreyingarfyrirtækja og hliðstæðrar starfsemi.
  • Kjarasamningur SGS og Landssambands smábátaeigenda og Samtaka smærri útgerða
  • Kjarasamningur SGS og Bændasamtaka Íslands
  • Kjarasamningur SGS og Landsvirkjunar
  • Kjarasamningur SGS og NPA miðstöðvarinnar

Þá liggur fyrir að fulltrúar Framsýnar munu verða virkir í kjaraviðræðum Starfsgreinasambandsins og Samtaka atvinnulífsins sem munu hefjast fyrir alvöru á allra næstu vikum. (framsyn.is)


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744