Framsýn mótmælir harðlega lokun Vísis hf. á Húsavík

Stjórn og trúnaðarmannaráð Framsýnar samþykkti að senda frá sér eftirfarandi ályktun í dag þar sem áformum Vísis hf. um að loka fiskvinnslu fyrirtækisins

Framsýn mótmælir harðlega lokun Vísis hf. á Húsavík
Fréttatilkynning - - Lestrar 188

Stjórn og trúnaðarmannaráð Framsýnar samþykkti að senda frá sér eftirfarandi ályktun í dag þar sem áformum Vísis hf. um að loka fiskvinnslu fyrirtækisins á Húsavík eftir mánuð er mótmælt harðlega.

Skorað er á fyrirtækið að endurskoða áformin með það að markmiði að halda starfseminni áfram.
 
Eftirfarandi ályktun var samþykkt á fundinum:
 
„Framsýn, stéttarfélag krefst þess að Vísir hf. endurskoði áform um að loka starfsstöð fyrirtækisins á Húsavík um næstu mánaðamót. Gangi áformin eftir munu þau hafa alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir starfsfólkið, þjónustuaðila og samfélagið allt við Skjálfanda.  Fiskvinnsla Vísis er með stærri vinnustöðum á Húsavík. Vinnslan er búin nýjum og fullkomnum vinnslulínum og frábæru starfsfólki sem skilað hefur góðu starfi fyrir fyrirtækið. Í ljósi þessara staðreynda má það ekki gerast að fiskvinnslu verði hætt á vegum fyrirtækisins á Húsavík. Sá skaði verður ekki bættur.“

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744