Framsýn leitar fulltingis dómstóla í Vísismálinu verði fyrirtækið ekki við kröfu félagsinsFréttatilkynning - - Lestrar 435
Fulltrúar Framsýnar funduðu í gær ásamt lögmönnum félagsins með forsvarsmönnum og lögfræðing-um Vinnumálastofnunar.
Tilefnið var ákvörðun fiskvinnslu-fyrirtækisins Vísis hf. að beina starfsmönnum fyrirtækisins á Húsavík á atvinnuleysisbætur 1. maí í stað þess að greiða þeim kjarasamningsbundinn uppsagnarfrest þar sem fyrirtækið hefur ákveðið að loka starfstöð fyrirtækisins á Húsavík og flytja starfsemina til Grindavíkur.
Á fundinum með Vinnumálastofnun gerðu fulltrúar Framsýnar alvarlegar athugasemdir við ákvörðun Vísis hf. um að senda starfsmenn á atvinnuleysisbætur í stað þess að greiða þeim uppsagnarfrest. Í máli forsvarsmanna Vinnumálastofnunar kom fram að þeir munu eiga fund með fulltrúum Vísismanna á morgun, föstudag, og fara yfir málið með þeim.
Eftir fundinn með Vinnumálastofnun tók Framsýn ákvörðun um að krefjast þess að Vísir hf. staðfesti skriflega að laun starfsmanna á Húsavík verði greidd réttilega um næstu mánaðarmót. Slík staðfesting liggi fyrir í síðasta lagi 14. maí næstkomandi.
Verði ekki orðið við áskorun þessari og yfirlýsing gefin út í samræmi við ofanritað innan frests er einboðið að líta svo á að fyrirtækið muni vanefna skyldu sína til greiðslu launa samkvæmt kjarasamningi. Þar með mun Framsýn leita fulltingis dómstóla til að fá hlut félagsmanna sinna réttan.





























































640.is á Facebook