22. des
Framsýn harmar nýgerðan kjarasamningFréttatilkynning - - Lestrar 318
Framsýn, stéttarfélag Þingeyinga harmar nýgerðan kjarasamning Samtaka atvinnulífsins og aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands.
Verði kjarasamningurinn samþykktur mun hann auka enn frekar á misskiptinguna í þjóðfélaginu.
- Full ástæða er til að fordæma ríkistjórn Íslands fyrir að sniðganga íslenskt verkafólk með því að lækka ekki skatta á láglaunafólki. Það gerist á sama tíma og hátekjufólki eru færðar skattalækkanir á silfurfati samkvæmt ákvörðun Alþingis í gær. Þá vekur þáttur Alþýðusambands Íslands töluverða athygli en sambandið taldi ekki ástæðu til að standa að fullu við bakið á láglaunafólki sem krafðist þess að persónuafslátturinn yrði hækkaður til jafns við aðra.
- Þá er það með öllu óásættanlegt að verkafólk á töxtum Starfsgreinasambands Íslands skuli í krónum talið fá mun lægri launahækkanir en aðrir hópar launafólks þrátt fyrir að svigrúm sé til staðar í ákveðnum atvinnugreinum s.s. sjávarútvegi. Dæmi eru um að hátekjumenn í krónum talið fái margfaldar hækkanir verkafólks út úr samningnum.
- Forystumenn ASÍ og SA kalla þennan gjörning samning í þágu láglaunafólks, jafnvel tímamótasamning. Metnaður þeirra fyrir kjörum verkafólks sem búið hefur við kjör innan við kr. 200 þúsund á mánuði er ekki merkilegri en þetta sem er umhugsunarefni.
Í tilkynningu frá Framsýn, stéttarfélagi segir að félagið standi heilshugar við bakið á formanni félagsins sem neitaði að skrifa undir kjarasamninginn.





























































640.is á Facebook