Framsýn harmar nýgerðan kjarasamning

Framsýn, stéttarfélag Þingeyinga harmar nýgerðan kjarasamning Samtaka atvinnulífsins og aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands.

Framsýn harmar nýgerðan kjarasamning
Fréttatilkynning - - Lestrar 316

Framsýn, stéttarfélag Þingeyinga harmar nýgerðan  kjarasamning Samtaka atvinnulífsins og aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands.

Verði kjarasamningurinn samþykktur mun hann auka enn frekar á misskiptinguna í þjóðfélaginu.

  • Full ástæða er til að fordæma ríkistjórn Íslands fyrir að sniðganga íslenskt verkafólk með því að lækka ekki skatta á láglaunafólki. Það gerist á sama tíma og hátekjufólki  eru færðar skattalækkanir á silfurfati samkvæmt ákvörðun Alþingis í gær. Þá vekur þáttur Alþýðusambands Íslands töluverða athygli en sambandið taldi ekki ástæðu til að standa að fullu við bakið á láglaunafólki sem krafðist þess að persónuafslátturinn yrði hækkaður til jafns við aðra.
  • Þá er það með öllu óásættanlegt að verkafólk á töxtum Starfsgreinasambands Íslands skuli í krónum talið fá mun lægri launahækkanir en aðrir hópar launafólks þrátt fyrir að svigrúm sé til staðar í ákveðnum atvinnugreinum s.s. sjávarútvegi. Dæmi eru um að hátekjumenn í krónum talið fái margfaldar hækkanir verkafólks út úr samningnum.
  • Forystumenn ASÍ og SA kalla þennan gjörning samning í þágu láglaunafólks, jafnvel tímamótasamning. Metnaður þeirra fyrir kjörum verkafólks sem búið hefur við kjör innan við kr. 200 þúsund á mánuði er ekki merkilegri en þetta sem er umhugsunarefni.

Í tilkynningu frá Framsýn, stéttarfélagi segir að félagið  standi heilshugar við bakið á formanni félagsins sem neitaði að skrifa undir kjarasamninginn.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744