Framsýn endurnýjar samning við Erni

Framsýn hefur gengið frá nýjum samningi við Flugfélagið Erni um afsláttarkjör fyrir félagsmenn sem fljúga milli Húsavíkur og Reykjavíkur.

Framsýn endurnýjar samning við Erni
Almennt - - Lestrar 531

Framsýn hefur gengið frá nýjum samningi við Flugfélagið Erni um afsláttarkjör fyrir félagsmenn sem fljúga milli Húsavíkur og Reykjavíkur. 

Samningurinn felur í sér að Framsýn í umboði aðildarfélaga Skrifstofu stéttarfélaganna kaupir 4800 flugmiða sem jafngildir um árs notkun félagsmanna á flugmiðum þar sem um 400 félagsmenn fljúga í hverjum mánuði á stéttarfélagsfargjaldinu að meðaltali.

Vegna verðlagsbreytinga og aukins kostnaðar í rekstri flugfélagsins náðist ekki að viðhalda óbreyttu verði sem verið hefur frá árinu 2015. Þess í stað hækka miðarnir til félagsmanna í kr. 10.300 per ferð. Þrátt fyrir það er um að ræða mjög gott verð en þess ber að geta að miðarnir eru seldir á kostnaðarverði hjá stéttarfélögunum. Nýju miðarnir koma í sölu 1. janúar 2019.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744