24. nóv
Fóru á SilfurleikanaÍþróttir - - Lestrar 341
Silfurleikar ÍR eru haldnir í nóvember ár hvert en þeir fóru fram sl. laugardag í Laugardalshöll.
Mótið var fyrst haldið árið 1996 og hét þá Haustleikar ÍR. Nafninu var breytt árið 2006 til að minnast þess að 50 ár voru þá liðin frá því að ÍR-ingurinn Vilhjálmur Einarsson fékk silfurverðlaun í þrístökki á Ólympíuleikunum í Melbourn í Ástralíu. Með Silfurleikum vilja ÍR-ingar minnast þessa mikla afreks og þrístökk skipar þar veglegan sess eins og vera ber. Silfurleikar ÍR eru fyrir 17 ára og yngri.
Fimm strákar fóru frá HSÞ á Silfurleikana staðráðnir í að bæta sinn persónulega árangur í sínum greinum á þessu aldurs ári. Alls kepptu þeir í 15 greinum og náðu að bæta sinn persónulega árangur eða jafna hann í 9 þeirra. Allir náðu að bæta sig í einhverri grein. Að auki náðu þeir sér í þrjú verðlaunasæti. Jón Alexander Arthúrsson vann kúluvarp í flokki 13 ára pilta með kasti upp á 12,04. Eyþór Kári Ingólfsson varð annar í hástökk 15 ára pilta, stökk 1,67 m. Unnar Þór Hlynsson einnig 15 ára varð í 3. sæti í 60 m. hljóp á tímanum 7,90 sek. (hsth.is)
Ari Ingólfsson, Unnar Þór Hlynsson, Eyþór Kári Ingólfsson, Jón Alexander Athúrsson, Hilmir Smári Kristinsson. Ljósm. HSÞ