Fleiri bæir rýmdir í Kinninni

Veðurspá gerir ráð fyrir að úrkoma aukist í kvöld og gæti uppsöfnuð úrkoma orðið töluverð til viðbótar samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands.

Fleiri bæir rýmdir í Kinninni
Almennt - - Lestrar 442

Ljósmynd LHG.
Ljósmynd LHG.
Veðurspá gerir ráð fyrir að úrkoma aukist í kvöld og gæti uppsöfnuð úrkoma orðið töluverð til viðbótar samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands.
 
Í tilkynningu á face­booksíðu lögreglunnar á Norðurlandi eystra segir að af þeim sökum var um klukkan 20 í kvöld tekin ákvörðun um að rýma sex bæi til viðbótar en þeir standa sunnar en þeir bæir sem áður voru rýmdir og tilheyra Kinn. Búið er að hafa samband við íbúana og hafa þeir yfirgefið rýmingarstaðina.
 
Þá hefur Vegagerðin tekið ákvörðun um að loka veginum um Kinn frá Gvendarstöðum að sunnan og vestan við afleggjarann að Vaði.
 
Stöðufundur vegna frekari skriðuhættu verður haldinn um hádegisbil á morgun.

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744