Flæði tímans, ný plata frá Sveini HaukssyniAlmennt - - Lestrar 707
Húsvíkingurinn Sveinn Hauksson gefur út um þessar mundir nýja hljómplötu sem nefnist Flæði tímans.
Sveinn, sem býr í Reykjavík og starfar sem rafvirki, hefur áður gefið út plöturnar Dropi í hafið 1983, Alíslenskt þjóðráð 1986, Sólfingur 1998, Sólbrot 1999 og Attilla 2010.
Auk þess hefur hann komið að fleiri hljómplötum.
Að sögn Sveins tók Flæði tímans í það heila fimm ár í vinnslu, unnin í samstarfi við Jóhann Ásmundsson, Ásmund Jóhannsson, Sigurgeir Sigmundsson, Arnar Guðjónsson ofl. en um sönginn sjá Dagur Sigurðsson, Brynhildur Oddsdóttir, Ragnar Pétur Jóhansson og Arnar Ingi Ólafsson.
Um hljóðfæraleik sjá Jóhann Ásmundsson, Ásmundur Jóhansson, Gulli Briem, Sveinn Hauksson, Sigurgeir Sigurmundsson, Arnar Gudjónsson, Óskar Gudjónsson, Rúnar Vilbergsson, Snorri Sigurðarsson Pétur Jónsson og Tómas Jónsson.
Textar eru eftir Guðberg Aðalsteinsson, Gísla á Uppsölum og Svein Hauksson.





























































640.is á Facebook