Fjögur ungmenni fengu Hvatningarverðlaun Völsungs

Á samkomu Völsungs í gær þar sem heiðrun íþróttafólks ársins 2022 fór fram var einnig fjórum ungmennum veitt Hvatingarverðlaun félagsins.

Fjögur ungmenni fengu Hvatningarverðlaun Völsungs
Íþróttir - - Lestrar 340

Magnús Atli, Davíð Leó, Katla María og Halla Bríet
Magnús Atli, Davíð Leó, Katla María og Halla Bríet

Á samkomu Völsungs í gær þar sem heiðrun íþróttafólks ársins 2022 fór fram var einnig fjórum ungmennum veitt Hvatingarverðlaun félagsins.

Hvatningarverðlaunin eru veitt þeim iðkendum 15 ára og yngri sem hafa staðið sig vel í starfi félagsins á einn eða annan hátt, hvort heldur sem inni á vellinum, á æfingum eða í almennu starfi félagsins. 

Tilnefningar bárust frá blak- og knattspyrnudeild Völsungs.

Eftirtaldir Völsungar hlutu hvatningarverðlaunin að þessu sinni:

  • Davíð Leó Lund fyrir knattspyrnu.
  • Halla Bríet Kristjánsdóttir fyrir knattspyrnu.
  • Katla María Guðnadóttir fyrir blak.
  • Magnús Atli Fannarsson fyrir blak.

Það verður gaman að fylgjast með þessu unga og efnilega íþróttafólki á komandi árum en með því að smella á myndirnar er hægt að fletta þeim og skoða í hærri upplausn.

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Davíð Leó Lund.

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Halla Bríet Kristjánsdóttir.

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Magnús Atli Fannarsson.

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Katla María Guðnadóttir.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744