Fjáreigendur fjölmenntu á aðalfundFréttatilkynning - - Lestrar 939
Aðalfundur Fjáreigendafélags Húsavíkur var haldinn í gær, þriðjudag, og var vel mætt á hann.
Í tilkynningu segir að fjörugar umræður hafi verið um málefni fundarins en auk venjulegra aðalfundarstarfa urðu umræður um beitarland frístundabænda ogmikilvægi þess að Norðurþing viðhaldi bæjargirðingum eins og þeim ber.
Þá töldu frístundabændur að skerpa þurfi á því að skipulagt svæði fyrir fjárhús við Traðagerði sé ætlað undir fjárrækt en ekki aðra starfsemi. Það er að fjárhús sem seld eru, séu seld undir fjárrækt en ekki undir geymslur eða aðra starfsemi.
Stjórn félagsins var endurkjörin. Hana skipa: Aðalsteinn Á. Baldursson formaður, Trausti Aðalsteinsson ritari, Linda M. Baldursdóttir gjaldkeri og meðstjórnendur Óðinn Sigurðsson, Kristinn Jóhann Lund og Aðalsteinn Ólafsson





























































640.is á Facebook