Félagsmönnum Framsýnar fjölgar og fjölgar

Á ađalfundi Framsýnar 25 maí sl. kom fram ađ alls greiddu 3.016 launamenn til Framsýnar á árinu 2022 en greiđandi félagar voru 2.731 áriđ 2021.

Félagsmönnum Framsýnar fjölgar og fjölgar
Almennt - - Lestrar 349

Á ađalfundi Framsýnar 25 maí sl. kom fram ađ alls greiddu 3.016 launamenn til Framsýnar á árinu 2022 en greiđandi félagar voru 2.731 áriđ 2021.

Greiđandi félagsmönnum Framsýnar fjölgađi ţví umtalsvert milli ára sem stađfestir ađ atvinnulífiđ er ađ taka viđ sér eftir heimsfaraldurinn auk ţess sem mikil ásókn er í félagiđ enda félagiđ eitt öflugasta stéttarfélag landsins. Án efa á félagsmönnum eftir ađ fjölga enn frekar á komandi árum.

Af ţeim sem greiddu félagsgjald til Framsýnar á síđasta ári voru 1.843 karlar og 1.173 konur, sem skiptist ţannig ađ konur eru 39% og karlar 61% félagsmanna. Athygli vekur ađ karlmönnum heldur áfram ađ fjölga á kostnađ kvenna. Hér á árum áđur var kynjaskiptingin nánast jöfn. Vissulega hefur ţađ áhrif ađ starfsmenn PCC á Bakka eru í miklum meirihluta karlmenn, en verksmiđjan hóf starfsemi 2018.

Ţá virđist sem erlendum karlmönnum í ferđaţjónustu sé einnig ađ fjölga umfram ţađ sem veriđ hefur undanfarin ár. Full ástćđa er til ađ greina ţessa ţróun betur enda áhugaverđ. Um síđustu áramót voru gjaldfrjálsir félagsmenn samtals 302, ţađ eru aldrađir og öryrkjar sem ekki eru á vinnumarkađi. Á hverjum tíma falla um 10% félagsmanna undir ţessa skilgreiningu. Fjölmennustu hóparnir innan Framsýnar starfa viđ matvćlaframleiđslu, ferđaţjónustu, almenn verslunarstörf, iđnađ og hjá ríki og sveitarfélögum.

Félagsmenn Framsýnar stéttarfélags voru samtals 3.318 ţann 31. desember 2022, ţađ er greiđandi og gjaldfrjálsir félagsmenn.


  • Herna

640.is | Ábyrgđarmađur Hafţór Hreiđarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744