Far Away Right Here – Langt í burtu, hérna

Ljósmyndarinn Martin Cox, búsettur í Los Angeles, fćddur í Englandi, mun í sumar halda einkasýninguna “Far away, right here” eđa “Langt í burtu, hérna” í

Far Away Right Here – Langt í burtu, hérna
Fréttatilkynning - - Lestrar 687

Ljósmyndarinn Martin Cox, búsettur í Los Angeles, fćddur í Englandi, mun í sumar halda einkasýninguna “Far away, right here” eđa “Langt í burtu, hérna” í Safnahúsinu. Margar myndanna á sýningunni eru afrakstur mánađarlangrar dvalar Martin í Fjúk listamiđstöđ á Húsavík sumariđ 2016. Međan á dvölinni stóđ kannađi Martin ströndina í vetrarbúningi og bjó til myndaröđ undir áhrifum af landslagi og sögu Húsavíkur .

 

Formleg opnun verđur laugardaginn 10. júní. Viđ ţađ tilefni verđur listakonan Ţóra Sólveig Bergsteinsdóttir međ gjörning. Hún hefur kannađ líkamann, hreyfingu og náttúru í list sinni frá ţví hún útskrifađist frá Listaháskóla Íslands áriđ 2004. Hún hefur komiđ fram og haldiđ sýningar víđa um Evrópu og í Kína. Ţóra Sólveig skapar innsetningar og gjörninga ţar sem hugarsmíđ líkamnast. Undirliggjandi ţráđur er hreyfing og tilvist. Verk hennar eru könnun á líkamlegri tilvist og tengslunum viđ náttúrulegt umhverfi. Ţóra Sólveig ólst upp á Norđurlandi, ć síđan hefur náttúran og náttúruöflin haft mikil áhrif á hana. “Ég hef alltaf veriđ í nánum tengslum viđ náttúruna og ţau tengsl eru kjarni verka minna sem listamanns. Verk mín samanstanda af gjörningum, vídeóverkum, ljósmyndum og innsetningum.”

 

 Lykilverkiđ í sýningu Martin Cox er afar stór klippimynd (collage), mynd af Húsavíkurhöfn gerđ úr hundrađ handprentuđum ljósmyndum. Myndirnar tók Martin af Húsavíkurhöfn viđ fjölbreytileg birtu- og veđurskilyrđi. Í verkinu segir Martin á sjónrćnan hátt sögu hafnarinnar, starfseminnar sem ţar fer fram, viđskipta og mannlífs. Veđriđ, fjöllin, skipin og birtan leika ađalhlutverk í myndunum. Hann bćtir einnig sögulegri vídd í verkiđ međ myndum úr Ljósmyndasafni Ţingeyinga af lífinu viđ höfnina í gegnum tíđina. Framtíđin birtist einnig í verkinu í myndum af heimabörnum teknum af foreldrum. Verkiđ vann Martin ađ mestu í vinnustofu sinni í L.A., en síđustu myndunum verđur bćtt í verkiđ viđ uppsetningu í Safnahúsinu.

 Martin hefur fundiđ ađ í ţessari vinnu sinni hafa uppvaxtarár hans í hafnarbćnum Southampton í Englandi, iđnađarbć međ sterka tengingu viđ sveitina í kring, haft áhrif. Ţau áhrif blandast síđan áhrifum sem hann hefur orđiđ fyrir af eyđmörkum sem umkringja Los Angeles, Martin er heillađur af fjarlćgđunum, ţögninni og jarđfrćđi ţessa heillandi landslags.

 Á sýninunni verđur einnig nánast “eintóna” röđ landslagsmynda,  myndaröđin “Snjóteikningar” dregur fram “minimalismann” í landslagi undir snjó.

Litir og skali eru viđfangsefni ţriđju myndarađirnnar. Ţar sem myndefniđ er snjóruđningar viđ götur Húsavíkur. Í samspili götulýsingar og ljósaskipta verđur til einstök birta sem lýsir upp ţessi sköpunarverk sem ađ hluta eru manngerđ.

 

Martin skýrir áhuga sinn á landslagi: “Ég vinn međ landslag til ađ sjá ţađ betur. Landslagiđ er birtingarmynd okkar og okkar athafna til langs tíma. Uppblástur, landnotkun, landbúnađur, jarđfrćđi, veđur, iđnađur og flekaskil, vísbendingar sem birtast allt í kringum okkur og hafa ađ öllum líkindum undirliggjandi áhrif á tilfinningar hversdagsins. Tíminn markar landslagiđ. Landslag er kort af fortíđinni, endurspeglun nútímans og framtíđar.  Ţađ er kjarni viđhorfa í okkar lífi, viđ sjáum ţađ út undan okkur, grundvöllinn ađ tilvist mannsins.

 

Ísland er land sem liggur viđ heimskautsbaug, ţví hafa loftslagsbreytingar stórkostleg áhrif ţar. Í kyrrđ dalanna er undirliggjandi menningarleg umbylting ţegar loftslagsbreytingar gera ţađ ađ verkum ađ forn landnýtingarhefđ sleppir tökunum.”

 

Martin dregst ađ viđfangsefnum ţar sem menning og náttúra eiga sína snertifleti. Sjónrćn áhrif tímans sem birtast á ákveđnum stađ og ţađ hvernig sú umbreyting á sér stađ. Myndir hans bera tímans rás og nćrveru sögunnar vitni. Verkefni Martin hefjast sem sjónrćn athugun sem ţróast í rannsóknir og síđar sýningar.

 

 Martin Cox hefur sýnt verk sín síđan á miđjun 9. áratug 20. aldar Einkasýningar hans eru m.a.: Stranded, LOS ANGELES MARITIME MUSEUM, 2012-13, Summer Navigation: Passage through the pastoral (an 18th Century English Machine in the modern era), BALLARD'S GALLERY, Los Angeles 2011 and Perfect Echo, GALLERY 3517 Sunset Blvd, Los Angeles, CA, 2011. His group exhibitions include: LAND: Interactions Pasadena Photography Arts at Keystone Gallery, Los Angeles, 2015, Figurehead, FIX, Los Angeles 2014.

 

 Frekari upplýsingar má finna á:  www.martincox.com

 


  • Herna

640.is | Ábyrgđarmađur Hafţór Hreiđarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744