06. feb
Davíð Örn kemur aftur á lániÍþróttir - - Lestrar 534
Davíð Örn Aðalsteinsson er genginn aftur til liðs við Völsung á láni frá Þór.
Davíð, sem verður verður 19 ára á árinu, kom til Völsungs um mitt síðasta sumar og tók lokaskrefin með liðinu upp í Lengjudeildina.
Davíð á að baki 6 deildarleiki í meistaraflokki og eru þeir allir með Völsungi.
Á fésbókarsíðu Græna hersins segir að Davíð Örn hafi farið fantavel af stað í vetur en hann spilaði eins og engill í leiknum gegn KA á dögunum.
Til gamans má geta að Hákon Atli bróðir hans spilaði með Völsungi sumarið 2023, en hann kom frá KA.





























































640.is á Facebook