Covid-19 bólusetningar á starfssvæði HSN í október.

Næsta bólusetning gegn Covid-19 verður í byrjun október á eftirtöldum stöðum:

Næsta bólusetning gegn Covid-19 verður í byrjun október á eftirtöldum stöðum:

  • Húsavík miðvikudaginn 6.10 kl. 16-18
  • Kópaskeri þriðjudaginn 5.10 kl. 11
  • Raufarhöfn miðvikudaginn 6.10 kl. 11
  • Þórshöfn fimmtudaginn 7.10 kl. 14

Bólusett verður með Pfizer.

Tímapantanir og nánari upplýsingar í síma 4640500, 4640600, 4640620 og 4640640 á opnunartíma heilsugæslu.

ATH! Eftirtaldir aðilar geta pantað tíma:

  • Þeir sem fengu fyrsta skammt af Pfizer 15.9 eða fyrr.
  • Þeir sem fengu Jansen bólusetningu 8.9 eða fyrr. (Þeir sem fengið hafa Covid-19 sýkingu og Jansen örvunarskammt þurfa ekki að mæta í annan örvunarskammt)
  • Barnshafandi konur og aðrir sem eru óbólusettir.
  • Allir, 60-69 ára sem fengið hafa tvo skammta af bóluefni fyrir a.m.k. 26 vikum eða fyrir 7.4.
  • Allir 70 ára og eldri sem fengið hafa tvo skammta af bóluefni fyrir a.m.k. 13 vikum eða fyrir 7.7.
  • Óbólusett börn 12-15 ára, (börn fædd fyrir 5.10 2009 og árgangar 2008, 2007 og 2006)
 

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744