24. des
Búið að hreinsa göngustígana í kirkjugarðinumAlmennt - - Lestrar 695
Guðbergur Rafn Ægisson kirkjugarðsvörður var brosmildur að venju þegar ljósmyndari 640.is hitti á hann í kirkjugarðinum í morgun.
Margir leggja leið sína í kirkjugarðinn á aðfangadag og vitja leiða látinna ástvina. Aðgengi þarf því að vera gott og Guðbergur var ljúka hreinsun göngustíganna í garðinum í morgun.
Verkið hóf hann í gær en mikill snjór er í garðinum. En eins og fyrr segir þá er búiðað hreinsa göngustígana.
Með því að smella á myndirnar er hægt að fletta þeim og skoða í hærri upplausn.
































































640.is á Facebook