Borgarhólsskóli sigraði í Stóru UpplestrarkeppninniAlmennt - - Lestrar 430
Lokahátíð Stóru upplestrar-keppninnar fór fram í dag Safnahúsinu á Húsavík.
Tíu ungmenni úr 7. bekk úr Borgarhólsskóla, Þingeyjarskóla, Grunnskólanum á Þórshöfn og Öxarfjarðarskóla komu fram og fluttu mál sitt fyrir gesti.
Í fyrstu umferð voru lesnar svipmyndir úr skáldsögunni Þín eigin þjóðsaga eftir Ævar Þór Benediktsson.
Í annarri umferð voru lesin ljóð eftir Önnu Sigrúnu Snorradóttir. En í þriðju og síðustu umferð fengu lesarar val um hvaða ljóð þeir vildu flytja. Nemendur Tónlistarskóla Húsavíkur og Þingeyjarskóla voru með tónlistaratriði.
Í fyrsta sæti var Katla Marín Þorkelsdóttir úr Borgarhólsskóla, í öðru sæti var Arndís Inga Árnadóttir úr Þingeyjarskóla og þriðja sæti skipaði Indriði Ketilsson úr Þingeyjarskóla.
Lesarar úr Borgarhólsskóla auk Kötlu voru þær Gestur Aron Sörensson, Karítas Embla Kristinsdóttir, Sigurður Helgi Brynjúlfsson og Þórdís Kristin O´Connor fulltrúar skólans og voru þau öll skólanum til mikils sóma segi á heimasíðu skólans.
Þar má sjá fleiri myndir en mefylgjandi myndir eru fengnar þaðan.
Katla Marín Þorkelsdóttir les í Stóru upplestrarkeppninni.
Fulltrúar Borgarhólsskóla í Stóru upplestrarkeppninni. F.v. Sigurður Helgi, Gestur Aron, Karitas Embla, Þórdís Kristín og Katla Marín.