15. júl
Bjóða fram undir listabókstafnum PFréttatilkynning - - Lestrar 690
Píratar hafa fengið listabókstafinn P samþykktan fyrir framboð sitt til næstu Alþingiskosninga.
Í síðustu Alþingiskosningum var notast við bókstafinn Þ, enda var P-ið ekki á lausu þar sem það hafði verið notað sem listabókstafur annars flokks í kosningunum á undan.
Í fréttatilkynningu segir að Píratar fagni því að P-ið sé nú þeirra og hlakkar þá til að sjá sem flesta merkja X við P í komandi Alþingiskosningum. Þá ítreka Píratar það við stjórnvöld að fastsetja dagsetningu kosninga sem allra fyrst.





























































640.is á Facebook