Barnabörn Neil Armstrong afhjúpa minnismerki um æfingar tunglfara á Íslandi

Í þessari viku voru 50 ár frá því að fyrri hópur Apollo geimfara kom til Íslands til æfinga fyrir tunglferðaáætlun NASA.

Í þessari viku voru 50 ár frá því að fyrri hópur Apollo geimfara kom til Íslands til æfinga fyrir tunglferðaáætlun NASA.
 
Af því tilefni munu barnabörn Neil Armstrong, fyrsta mannsins sem gekk á tunglinu, afhjúpa minnisvarða um æfingar afa þeirra og fleiri tunglfara, en minnisvarðinn stendur við hlið Könnunarsafnsins á Húsavík. Apollo geimfararnir Rusty Schweickart og Walter Cunningham munu ávarpa gesti, sem og Dr. Jim Rice, en hann stjórnar Marsbílaverkefnum NASA og hefur við undirbúning þeirra oft heimsótt Ísland. Afhjúpunin fer fram kl. 19.00, miðvikudaginn 15. júlí 2015.

Að athöfn lokinni verður haldið inn í safnið þar sem Sævar Helgi Bragason mun flytja stutt erindi um leiðangur New Horizons, en farið mun síðar í dag fljúga framhjá Plútó. Ef vel gengur verður svo komið á beinu sambandi við stjórnstöð New Horizons og rætt við stjórnanda farsins Alan Stern og býðst gestum safnsins að beina til hans spurningum.

Þarna er því um tvo mjög merkilega viðburði að ræða og eru allir velkomnir.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744