16. júl
Bætt aðstaða við HúsavíkurhöfnAlmennt - - Lestrar 97
Á dögunum var malbikaður göngustígur meðfram grjótgarðinum á landfyllingunni í Norðurhöfninni á Húsavík.
Frá þessu segir á heimasíðu Norðurþings.
Í vor var einnig komið fyrir flotbryggju sunnan við Slökkvistöðina fyrir aðkomu léttabáta úr skemmtiferða-skipum sem liggja við akkeri út á flóanum.
Þessar framkvæmdir eru til að bæta aðgengi fyrir farþega skemmtiferðaskipa en komum þeirra hefur fjölgað til Húsavíkur en gert er ráð fyrir allt að 70 komum farþegaskipa í sumar og fleiri á komandi árum.