Átta teymi freista gćfunnar á Fjárfestahátíđ Norđanáttar

Átta fyrirtćki hafa veriđ valin til ţátttöku á Fjárfestahátíđ Norđanáttar sem fer fram á Siglufirđi ţann 20. mars nćstkomandi.

Frá Siglufirđi.
Frá Siglufirđi.

Átta fyrirtćki hafa veriđ valin til ţátttöku á Fjárfestahátíđ Norđanáttar sem fer fram á Siglufirđi ţann 20. mars nćstkomandi. 

Fjárfestahátíđ Norđanáttar var haldin fyrst áriđ 2022 viđ frábćrar undirtektir fjárfesta og annarra lykilađila í vistkerfi nýsköpunar víđsvegar af landinu. Fyrsta áriđ voru verkefni af Norđurlandi sem tóku ţátt, en vegna hversu vel tókst til ákváđu ađstandendur hátíđarinnar ađ opna viđburđinn fyrir fyrirtćki og frumkvöđla af öllu landinu. Í ár verđur engin breyting ţar á.

Fram kemur í tilkynningu ađ hátíđin sé vettvangur fyrir frumkvöđla og fyrirtćki sem leita eftir fjármagni og eru tilbúnir ađ fá fjárfesta ađ borđinu.

Ţá er markmiđ hátíđarinnar einnig ađ draga fram tćkifćri til uppbyggingar á atvinnuvegum og efla nýsköpun í kringum auđlindir landsbyggđanna, en ţarna gefst gott tćkifćri til ţess ađ mynda tengingar og eiga fyrsta skrefiđ í átt ađ framtíđarsamvinnu. 

Verkefnin sem munu taka ţátt á Fjárfestahátíđ Norđanáttar 2023 eru: 

Aurora Abalone - The future solution for on-land sustainable shellfish production

Circula/Recoma - Recoma gefur sorpi nýtt líf

FoodSmart Nordic- FoodSmart Nordic framleiđir hágćđa vatnsrofiđ prótein úr sjávarfangi, m.a. kollagen og sćbjúgnaduft. Fersk hráefnin koma úr nćrumhverfi sem styđur viđ gćđi, sjálfbćrni og hringrásarhagkerfiđ.

Humble - Minnkađu matarsóun međ humble!

Munasafn - We provide infrastructure for municipalities and communities to manage and share items.

Nanna Lín - Nanna Lín varan er leđur úr laxarođi í metravís, rođiđ er brotiđ niđur og endurmótađ í breiđur áđur en ţađ er sútađ yfir í leđur.

Surova - Making tech to grow veggies that are good for you and for the planet

Skógarafurđir - Stćkkun vinnslustöđvar fyrir umhverfisvćnar íslenskar viđarafurđir


Í valnefnd sátu Ragnheiđur H. Magnúsdóttir hjá Nordic Ignite, Hólmfríđur Sveinsdóttir hjá Háskólanum á Hólum, Ásta Sóllilja Guđmundsdóttir hjá Klak Icelandic Startups, Hreinn Ţór Hauksson hjá Íslenskum Verđbréfum, Edda Konráđsdóttir hjá Iceland Innovation Week og Marta Hermannsdóttir hjá Eyri Ventures.

Ađ verkefninu Norđanátt standa EIMUR og landshlutasamtökin á Norđurlandi SSNE og SSNV međ stuđningi frá Umhverfis-, orku-, og loftslagsráđuneytinu. 

Styrktarađilar Fjárfestahátíđarinnar 2024 eru Tćkniţróunarsjóđur, KPMG, Nýsköpunarsjóđur og KEA.


  • Herna

640.is | Ábyrgđarmađur Hafţór Hreiđarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744