Ásdís og Yngvi Ragnar hljóta menningarverðlaun ÞingeyjarsveitarAlmennt - - Lestrar 531
Ásdís Erla Jóhannesdóttir og Yngvi Ragnar Kristjánsson eigendur Sel Hótel Mývatn hlutu í gær menningarverðlaun Þingeyjarsveitar árið 2025
Frá þessu segir á heimasíðu Þingeyjarsveitar en Íþrótta-tómstunda og menningarnefnd sveitarfélagsins var einhuga um valið.
Að auki hlutu tilnefningar:
Skákfélagið Goðinn, sem síðustu tvo áratugi hefur haldið uppi eftirtekaverðu starfi undir stjórn Hermanns Aðalsteinssonar í Lyngbrekku.
Anna Dagbjört Andrésdóttur í Gautlöndum fyrir að vera góð fyrirmynd og hvetja íbúa til jákvæðra samskipta m.a. með viðburðahaldi.
Söngfélagið Sálubót, sem árum saman hefur laðað að fólk til samsöngs og staðið fyrir fjölbreyttum samkomum.
Í tilkynningunni segir að mikill fjölbreytileiki og gróska einkenni menningarlíf Þingeyjarsveitar og er nokkuð sem virðist samofið samfélaginu og órjúfanlegur hluti þess.
"Það er samt ekki sjálfgefið að svo sé. Menningin okkar er gullegg og í henni felast tækifæri sem við þurfum að vera meðvituð um að halda á lofti og hlúa að, því öflugt menningarlíf er stór þáttur í velsæld hvers samfélags.
Það er með sanni sagt að handhafar Menningarverðlaunanna 2025 hafi verið virkir þátttakendur í samfélaginu í gegnum árin með reglulegum samkomum og menningarviðburðum og hvatt okkur til jákvæðra samskipta. Sem dæmi má nefna skíðagönguspor, jólasveinana í Dimmuborgum, fjölskylduhlaðborð í tilefni jóla, margháttaða aðkomu að vetrarhátíð og Vordægur fyrir 60 ára og eldri. Þau hafa einnig lagt sitt að mörkum til íslenskrar bjórmenningar, en bjórinn þeirra er framleiddur undir merkinu Mývatn öl.
Ekki má láta hjá liggja að hrósa og þakka Ragga og Ásdísi fyrir það sem þau skila til baka í samfélagið, því þau eru mikilvægir bakhjarlar fyrir íþrótta,-menningar og góðgerðastarf í sveitinni" segir í tilkynningunni.





























































640.is á Facebook