Piramus & Þispa frumsýnir Andlát við jarðarförFréttatilkynning - - Lestrar 732
Föstudaginn 30. október frumsýnir Píramus&Þispa, leikfélag Framhaldsskólans á Húsavík, leikritið Andlát við jarðarför, í leikstjórn Ástu Magnúsdóttur.
Leikritið er byggt á bresku kvikmyndinni Death at a funeral eftir Dean Craig.Leikritið fjallar um fjölskyldu sem hittist við jarðarför fjölskylduföðursins. Eldri bróðirinn tekur að sér að skipuleggja jarðarförina og flytja minningarorðin. Það sem upphaflega virðist vera tiltölulega einfalt verkefni verður honum hins vegar fjötur um fót. Alls kyns óvæntar uppákomur gera jarðarförina að martröð fyrir fjölskylduna, en þó að algjörum brandara fyrir áhorfendur.
Sýningin er leyfð fyrir alla aldurshópa. Upplýsingar um miðapantanir má finna á facebook síðu hópsins.
Frumsýning: Föstudaginn 30. Okt kl. 20:00 2 sýning: Laugardaginn 31. Okt kl. 16:00 3 sýning: Mánudaginn 2.Nóv kl. 20:00





























































640.is á Facebook