28. maí
Alzheimersamtökin með fræðslu á HúsavíkFréttatilkynning - - Lestrar 413
Eitt af meginmarkmiðum Alzheimersamtakanna er að auka þekkingu og dýpka skilning á þeim áskorunum sem einstaklingar með heilabilun og aðstandendur þeirra standa frammi fyrir.
Þau halda því reglulega fræðsluerindi víðsvegar um landið.
Nú er förinni heitið norður þar sem haldin verða þrjú fræðsluerindi sem eru öllum opin. Eitt á Húsavík, annað á Dalvík og það þriðja á Akureyri.
Heilabilun og samskipti
Á Húsavík verður erindið haldið mánudaginn 2. júní kl. 17:00 í Hlyn, félagsaðstöðu eldri borgara við Garðsbraut 44. Thelma Jónsdóttir, fræðslustjóri og Ásta Kristín Guðmundsdóttir, ráðgjafi Alzheimersamtakanna kynna þá starfsemi samtakanna og
fjalla um heilabilun og samskipti.
Fyrir hverja
Fyrirlestrarnir eru opnir öllum áhugasömum. Þeir sem mæta öðlast skilning á heilabilun og hvernig megi bregðast við breyttum aðstæðum. Þá verður farið yfir leiðir til að auðvelda samskipti og hugmyndir fyrir ánægjulegar samverustundir
reifaðar.
Aðgangur er ókeypis





























































640.is á Facebook