Alzheimerkaffi á HúsavíkAlmennt - - Lestrar 750
Tenglar Alzheimersamtakanna á Húsavík stóðu fyrir sínu fyrsta Alzheimer kaffi þriðjudaginn 16. október síðastliðinn.
Þær Elín Ívarsdóttir sjúkraliði og aðstandandi og Anna Lára Finnsdóttir aðstandandi buðu fólki í salinn í Mið-Hvammi kl.16:30.
Kaffið var öllum opið og kaffigjald aðeins 500 kr.-
Frá þessu segir á alzheimer.is
Elín byrjaði kaffið á því að fara yfir kynningu á Alzheimersamtökunum og tenglastarfinu. Því næst var hlé svo fólk gæti fengið sér kaffi og köku.
Þær Elín og Anna Lára fóru á milli og ræddu málin við þá sem höfðu gert sér ferð til þeirra. Að því loknu spilaði Knútur Jónasson undir fjöldasöng. Einn gesturinn átti afmæli þennan dag og fékk að sjálfsögðu afmælissönginn sunginn fyrir sig.
Hafdís Inga Kristjánsdóttir söng þrjú lög við undirspil Knúts. Elín og Anna Lára þakka öllum kærlega fyrir komuna og notalega stund.
Þær eru strax farnar að huga að næsta viðburði sem verður á nýju ári.





























































640.is á Facebook