Ályktun SSNE um aðgengi að raforku

Aukaþing SSNE haldið í Laugarborg í Eyjafjarðarsveit 23. september 2023 leggur áherslu á að öll sveitarfélög landsfjórðungsins eigi kost á

Ályktun SSNE um aðgengi að raforku
Almennt - - Lestrar 262

Aukaþing SSNE haldið í Laugarborg í Eyjafjarðarsveit 23. september 2023 leggur áherslu á að öll sveitar-félög landsfjórðungsins eigi kost á eðlilegum þróunarmöguleikum til uppbyggingar hvað varðar aðgengi að raforku.

Í ályktunni kemur fram að sérstakt áhyggjuefni sé nú hinir takmörkuðu möguleikar sem Langanesbyggð stendur frammi fyrir vegna þeirrar óásættanlegu raforkutengingar sem sveitarfélagið býr við.

Aukaþing SSNE skorar á ráðherra orkumála að beita sér fyrir úrbótum á þessu í samvinnu við raforkuflutningsfyrirtæki, s.s. RARIK og Landsnet, þannig að atvinnulíf og íbúar alls landsfjórðungsins geti tekið fullan þátt í orkuskiptum. 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744