Aflaverðmæti grásleppu 942 milljónir

Grásleppuafli undanfarin þrjú ár hefur tæpast svarað eftirspurn kaupenda, jafnt framleiðsluaðilum á grásleppukavíar og á frystri grásleppu til Kína.

Aflaverðmæti grásleppu 942 milljónir
Almennt - - Lestrar 525

Sigurður Kristjánsson grásleppusjómaður.
Sigurður Kristjánsson grásleppusjómaður.

Grásleppuafli undanfarin þrjú ár hefur tæpast svarað eftirspurn kaupenda, jafnt framleiðsluaðilum á grásleppukavíar og á frystri grásleppu til Kína.

Það hefur skilað sér í hækkun á verði og fært sjómönnum betri afkomu en frá þessu er greint á heimasíðu Landssambands smábátaeigenda.

Á undanförnum árum hefur sala á grásleppu þróast úr því að eingöngu var markaður fyrir hrognin í að fiskurinn er nú seldur heill og óskorinn.  Eins og gjarnan var með sölu grásleppuhrogna eru verðsveiflur tíðar.  
Á tímabilinu 2013 - 2018 hefur meðalverð lægst farið í 155 kr/kg en hæst í 210 kr/kg á síðustu vertíð.  35% verðhækkun á tveimur árum er líklegast met í verðhækkun til sjómanna hér við land.
Þess ber þó að geta að verðið á vertíðinni 2015 var 204 kr/kg sem sýnir glöggt að afkoma sjómanna af veiðunum nú er lakari en þá var.
 
Útflutningsafurðir grásleppu eru þrenns konar. 
 
• Fullunnin vara - grásleppukavíar
• Söltuð grásleppuhrogn  
• Fryst grásleppa án hrogna
• Fersk grásleppuhrogn (í litlum mæli)
 
Á árinu 2017 nam útflutningsverðmæti þessara afurða 1.789 milljónum.  Miðað við verðhækkanir sem orðið hafa á árinu má búast við góðri aukningu verðmæta milli ára.  Sérstaklega í frosinni grásleppu þar sem útflutningsverð á fyrstu 6 mánuðum ársins er 40% hærra en það var í fyrra.
 
 
Samanburður fyrstu 6 mánaða 2017 og 2018 staðfestir fyrirsjáanlega aukningu. Í ár hafa þeir skilað 896 milljónum á móti 629 milljónum á sama tímabili í fyrra.

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744