Afhjúpun og blessun minnisvarða

Föstudaginn 3. september n.k. verður afhjúpaður minnisvarði um Jaan Alavere á lóð Stórutjarnaskóla.

Afhjúpun og blessun minnisvarða
Almennt - - Lestrar 273

Föstudaginn 3. september n.k. verður afhjúpaður minnisvarði um Jaan Alavere á lóð Stóru-tjarnaskóla.

Greint er frá þessu á heimasíðu Þingeyjar-sveitar en þann 3. september er liðið ár frá andláti hans.

Athöfnin hefst kl. 11:00. Marika Alavere afhjúpar minnisvarðann og sr. Jónína Ólafsdóttir flytur blessunar- og minningarorð. Þá munu nemendur skólans syngja skólasönginn, sem Jaan samdi við texta eftir Anitu Þórarinsdóttur.

Allir eru velkomnir en eru vinsamlegast beðnir að hafa í huga gildandi sóttvarnir.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744