8 íbúðir byggðar í Klappahrauni

Fyrir skömmu hóf verktakinn Húsheild byggingu á tveimur raðhúsum í nýjum hluta Klappahrauns í Reykjahlíð en þar verða alls átta íbúðir.

8 íbúðir byggðar í Klappahrauni
Almennt - - Lestrar 408

Frá framkvæmdum við Klapparhraun.
Frá framkvæmdum við Klapparhraun.

Fyrir skömmu hóf verktakinn Húsheild byggingu á tveimur raðhúsum í nýjum hluta Klappahrauns í Reykjahlíð en þar verða alls átta íbúðir.

Jafnframt eru gatnagerðarframkvæmdir við þennan eystari hluta Klappahrauns einnig hafnar.

Stefnt er að því að íbúðirnar verði tilbúnar síðla sumars. Sveitarfélagið var kaupandi að tveimur íbúðunum og samþykkti á fundi sínum í sl. viku að bæta þeirri þriðju við eftir að ákveðið var að selja Birkihraun 9 í kjölfari hitaveitutjóns. 

Frá þessu segir í nýjasta sveitarstjórapistli Þorsteins Gunnarssonar sveitarstjóra Skútustaðahrepps.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744